
Ráðgjöf í reykbindindi – Grænt númer - 800 6030
Reyksíminn - Ráðgjöf í reykbindindi – 800 6030
Símaþjónusta fyrir fólk sem vill hætta að reykja.
Líka fyrir þá sem vilja hætta að nota reyklaust tóbak eða minnka eða hætta notkun nikótínlyfja.
Við þjónustuna starfa hjúkrunarfræðingar
með sérþekkingu í tóbaksmeðferð.
-
Þú getur sent inn fyrirspurn með því að smella hérog verður henni svarað eins fljótt og kostur er. Svarið birtist svo hér.
-
Þú getur skráð þig hjá okkur með því að senda okkur tölvupóst á netfangið 8006030@heilthing.is þar sem fram kemur fullt nafn, aldur, símanúmer og að þú óskir eftir að við hringjum í þig. Æskilegt er að það komi fram hvenær best er að ná í þig.
-
Þú getur sent okkur tölvupóst og fengið persónulega ráðgjöf með tölvupósti sem birtist þá ekki á vefnum.
-
Þú getur hringt í okkur í síma 800 6030 á milli kl. 17 og 20 á virkum dögum og fengið beint samband við sérhæfðan ráðgjafa, eða þú getur skilið eftir skilaboð á símsvaranum utan opnunartímans.
Reyksíminn býður upp á persónulega ráðgjöf til þeirra sem vilja hætta að reykja eða nota tóbak. Ráðgjöfin byggist á reykingasögu og þörfum hvers einstaklings og lögð er áhersla á hvatningu og stuðning. Símaþjónustan þjónar öllu landinu og er veitt endurgjaldslaust. Hægt er að fá sent heim fræðsluefni og eftirfylgd er veitt í formi endurhringinga.
Reyksíminn hefur umsjón með gagnvirku vefsíðunni www.reyklaus.is þar sem hægt er að skrá sig og fá stuðning. Þar er að finna mikið af alls konar fræðslu og prófum. Einnig er hægt að halda dagbók og taka þátt í spjalli.
Heilbrigðisstofnun Þingeyinga rekur reyksímann í samstarfi við Lýðheilsustöð, Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið og Landlæknisembættið.
Sjá fræðsluefni og upplýsingar undir liðnum "Fræðsla" hér á síðunni ! |